Valborg fasteignasala kynnir:Til sölu glæsilegt og nýuppgert 167 m² skrifstofuhúsnæði á 6. hæð við Kringluna. Getur verið laust með skömmum fyrirvara..
Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í móttöku, opið skrifstofurými, 2 lokaðar skrifstofur, eitt rúmgott fundarherbergi með glerveggjum að hluta, rúmgott stílhreint eldhús. Kerfisloft og lýsing í loftum. Snyrtingar eru í sameign. Á gólfum er vandað nýtt parket. Lyfta er í húsinu. Gott aðgengi er úr bílakjallara hússins. Á sömu hæð er 96 m² skrifstofurými sem hægt væri að opna á milli með einföldum hætti og verða þá heildarfermetrarnir 263. Minna rýmið er laust nú þegar og hitt getur verið laust með skömmum fyrirvara.
Frekari upplýsingar veita:
Elvar Guðjónsson löggiltur fasteignasali, sími 8954000. Póstfang: [email protected]
María Sigurðardóttir viðskfr. sími 8201780 Póstfang: [email protected]